Um Verkin

Human-natureÉg hef málað steina um árabil og leikið mér að tvöfaldri merkingu í myndum og titlum.
Í málverkunum fjalla ég um náttúruna, manninn í náttúrunni og náttúrunni í manninum, þar með talið náttúruna í mér. Málverkin eru undir sterkum áhrifum frá íslenskri náttúru og menningu. Miklar andstæður eldur, ís og svartir sandar við hvíta jökulsporða. Hálendi Íslands með sínum sterku litum þar sem ekkert sem ég set á strigann getur verið litríkara en fyrirmyndin. Málverkin vinn ég út frá ímyndum og minningarbrotum með vísun í mannlega náttúru og samskipti milli manna. Einnig er ég að fást við vatnið, -kyrrt, rennandi eða jafnvel frosið.

Flest verkin eru unnin með akríl á striga en síðustu tvö árin hef ég verið að vinna samhliða með “patin au vin” sem er uppskrift að bindiefni en hana fann ég í franskri bók fyrir nokkrum árum.
Blandan samanstendur úr hvítvíni, mjólk, eggjum, sykri og litadufti. Mér finnst viðeigandi að mála með Móselvíni eftir að ég flutti hingað til Lúxemborgar.”
Guðrún Benedikta – Júlí 2007 Lúxemborg